Eins og kjuklingur a teini....

Hafdís grillast i ofni, við vægan hita

mánudagur, febrúar 04, 2008

Framfarir

Litla sæta nágrannastelpan sem býr við hliðina á mér hefur tekið stórkostlegum framförum í píanóleik undanfarið hálft ár. Hitt er svo annað mál að nýlega er hún farin að fikta við lagasmíðar, mér til þó nokkurs ama. (við deilum stoðvegg)
Ég þyrfti helst að koma krakkanum í skilning um að það sé öruggast að halda sig við verk gömlu meistaranna í stað þess að reyna eitthvað upp á eigin spýtur.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir kaffihúsaferðina .. vona þú sért spræk ;) Verðum í bandi! knús R

8:15 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim