Eins og kjuklingur a teini....

Hafdís grillast i ofni, við vægan hita

fimmtudagur, apríl 17, 2008

Hólí krap

Mikið óskaplega vorkenni ég rauðhærðustúlkunni og múshærðapiltnum sem áttu saman heita stund inná klósetti á Hressó sl.föstudag. Þau vissu nefnielga ekki að á næsta bás væri stelpa að taka myndir af þeim sem hún síðan birti á galopinni síðu á feisbúkk.

Ég vona að rauðhærðastelpan og múshærðri strákurinn hafi frekar harðan skráp og húmor fyrir sjálfum sér. Ennfremur vona ég að þau taki sig til og bruni útá Seltjarnarnes, læsi stelpuskottið inná mykrum, köldum og blautum stað og neiti að hleypa henni út fyrr en hún tekur myndirnar burt og biðst afsökunnar. Svo ættu þau að spakra duglega í sköflunginn á henni. Þá fyrst væri réttlætinu fullnægt að einhverju leyti.

Svona hluti gera mig dapra. Annarsvegar að fólk stundi kynlíf inná klósettinu á Hressó og hinsvegar að einhver skuli taka myndir af því til að birta á netinu.

Ég velti fyrir mér að fremja feisbúkk sjálfsmorð í mótmælaskyni. Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð? anyone?

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ohh, ég finn þetta ekki, kannski er hún búin að taka þetta niður, en auðvitað heldur maður áfram á feisbúkk! Lífið heldur áfram...

3:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

það er ekki hægt að deyja á flettismetti. Margir hafa reynt en engum tekist að deyja smettisdauða.

8:44 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er málið að sparka í sköflung.

12:29 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim