síðasta blogg ársins
hvað er svona jólalegt við lagið "Adam átti syni sjö" ?
Hafdís grillast i ofni, við vægan hita
Mission Jólakort
Jólalög og fávizka almennings.
Tannlæknar
Vondir vondukallar.
Út og heim aftur
Dublin
Nú er bloggið mitt orðið fullra viku gamalt. Enn hefur mér ekki tekist að leysa leyndardóminn um horfnu kökurnar úr krúsinni en ég er komin á sporið, en núna er það önnur krús sem veldur mér hugarangri. Nánartiltekið jólasmákökukrús heimilisins. Í gær þegar ég ætlaÃði að laumast í tréða krús að sækja mér par af rúsínukökum með efnafræðinni, var slegið á hendur mér og ég fékk að heyra sömu gömlu tugguna um að þetta ætti nú að endast til jóla, ég hefði ekki gott af þessu og afhverju ég fengi mér ekki epli í staðin (eins og það jafnist á við rúsínukökur) Kökulaus og allslaus hélt ég svo áfram að læra og horfði stúrin á kökukrúsina í hillingum.
Einu sinni þegar mér leiddist hrikalega tók ég uppá því að endurskíra alla hluti og öll forrit í heimilistölvunni uppá nýtt á íslensku, öðrum fjölskyldumeðlimum til mikillar gleði. Nú er komin ný heimilistalva og mér fannst uppálagt að endurtaka leikinn. Hér eru nokkur dæmi um þýðingar mínar.
Sannkvæmt >"landa-quizinu" er ég kólembía. Borgarastyrjöld og fáránlega há morðtíðni, það er ég.
You're Colombia!
You do a lot of drugs, and these have kind of distorted your view of
reality, to the point that everyone looks like an enemy. You keep trying to restore
order over your schizophrenic world view, but you don't even know which goal is your own
and which is someone else's. You're pretty sure someone needs to be punished for all
this, but who that is changes all the time. Things would be a lot better for you if
you switched to coffee, or even to decaf, but all this money would be hard to give up.
Take
the Country Quiz at the href="http://bluepyramid.org">Blue Pyramid
Nú er fyrsti boxbjáninn fallinn í valinn, og annar boxbjáninn fær þar af leiðandi þann "heiður" að fá K.O í ferilsskrána sína. Eins dauði er annars brauð, eins og sagt er. Afhverju stundar fólk ekki bara hættulausar íþróttir eins og sund?
Jóla hvað